Raðhús í San Pedro - no Villa San Pedro
Raðhús í San Pedro - no Villa San PedroUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Orlofsleiga - Vetrarleiga - San Pedro
Stórglæsilegt hús til orlofs- eða vetrarleigu í San Pedro. Húsið sem er á 2 hæðum samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt í huggulegan flísalagðan garð þar sem er góð grillaðstaða og upphituð sundlaug. Í þvottaherberginu er saunaklefi. Það er vel hugað að öllum smáatriðum í húsinu og eru húsgögnin vönduð og falleg. Loftkæling er í húsinu.
Staðsetningin er mjög góð en San Pedro del Pinatar er lítill og fallegur bær sem er staðsettur í ca 20 mínútna akstursfjarlægð suður af Torrevieja. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu