Raðhús í Playa Flamenca - no Myrdal
Raðhús í Playa Flamenca - no MyrdalUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 5 klukkustundir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 1
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Orlofsleiga - Vetraleiga - Playa Flamenca
Fallegt raðhús til orlofs- eða vetrarleigu í Playa Flamenca. Húsið samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Þar sem gengið er inn í húsið er góð verönd en útgengt er á útisvæði baka til þar sem er þvottaaðstaða og grill. Þaðan er stigi upp á stórt og gott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Húsið er staðsett í góðum kjarna, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í ca 15 mínútna göngufæri en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Ramblas og Las Colinas. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og eru reglulega hittingar og ferðir á vegum Íslendingafélagsins og Félags húseigenda á Spáni.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu