Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Til sölu - Torrevieja
Fallegt raðhús til sölu í Los Balcones, Torrevieja. Húsið sem er á 2 hæðum er 113m2 og samanstendur af 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Við húsið er lokaður garður/verönd, en einnig er úgengt úr svefnherbergi á efri hæð út á góðar svalir og upp á sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Húsið er staðsett í snyrtilegum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er góð en kjarninn er staðsettur rétt hjá sjúkrahúsinu í Torrevieja. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en þrátt fyrir að vera rólegt hverfi, þá er stutt í meira fjör fyrir þá sem leita að því. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu