Raðhús í Campoamor - no A-2500
Raðhús í Campoamor - no A-2500Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 12 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Campoamor
Fínt hús til orlofs- eða vetrarleigu í Campoamor. Húsið sem er á einni hæð, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt í rúmgóðan, lokaðan garð þar sem er grillaðstaða og nóg pláss til að njóta sólarinnar. Bílskúr fylgir húsinu en húsið er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og padel velli.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og -bari. Innan kjarnans er einnig hægt að kaupa skyndibita og drykki. Campoamor er rólegt og friðsælt svæði en þó stutt í meira líf fyrir þá sem leita að því. La Zenia er í ca 10 mínútna akstursfjarlægð frá Campoamor. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Næsta strönd er í ca 15 mínútna göngufæri.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu