Raðhús í Campoamor - no A-2413
Raðhús í Campoamor - no A-2413Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 12 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 3
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Campoamor
Huggulegt raðhús til orlofs- eða vetrarleigu í Campoamor. Húsið samanstendur af 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, fullbúnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Húsið er á 2 hæðum, en á neðri hæðinni eru stofan, eldhúsið og baðherbergi. Á efri hæð eru svefnherbergin og 2 baðherbergi. Útgengt er úr eldhúsi á verönd baka til en úr stofu á verönd að framan. Einnig er útgengt á svalir úr einu svefnherberginu. Húsið er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og einnig fylgir stæði í bílageymslu.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi en til að mynda eru góðir 18 holu golfvellir í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði eignin er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólaramegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu