Raðhús í Campoamor - no A-2412
Raðhús í Campoamor - no A-2412- 3 svefnherbergi
- 3 baðherbergi
Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 7 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 3
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Campoamor
Huggulegt raðhús í Campoamor til orlofs- eða vetrarleigu. Húsið samanstendur af 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Inn af eldhúsinu er svo þvottahús. Útgengt er á bakverönd úr eldhúsinu en einnig er verönd og garður fyrir framan húsið. Af efri hæð er útgengt á fínar svalir. Húsið er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að garði með sameiginlegri sundlaug en einnig fylgir íbúðinni stæði í bílageymslu.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði, bari, apótek og heilsugæslu. Verslunarmiðstöðin vinsæla, La Zenia Boulevard er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlæð, en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Campoamor Golf, Villamartin Golf, Las Colinas og Las Ramblas. Ýmiskonar önnur afþreying er í nágrenninu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Campoamor ströndin er í aðeins 150m fjarlægð.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði húsnæðið er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsinguMortgage