Raðhús í Cabo Roig - no S Aire Cabo Roig
Raðhús í Cabo Roig - no S Aire Cabo RoigUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 dagar
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Orlofsleiga - Cabo Roig
Huggulegt raðhús á virkilega góðum stað í Cabo Roig til orlofsleigu. Húsið samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góða verönd sem snýr út í sameiginlegan sundlaugagarð. Úr eldhúsinu er útgengt á rúmgott útisvæði baka til, þar sem er þvottaaðstaða. Svefnherbergin eru á efri hæð, en útgengt er úr stærra herberginu á fínar svalir sem einnig snúa út í sundlaugagarðinn. Það er einnig fínt sólþak, svo það er nóg pláss til að njóta sólarinnar. Húsið er staðsett í litlum, huggulegum kjarna, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er frábær, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en Cabo Roig stripið er rétt fyrir ofan og þar má finna fjölda veitingastaða og verslanir. Stutt er í ströndina sem er staðsett rétt fyrir neðan kjarnann og falleg gönguleið er meðfram ströndinni. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í 5-10 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu