Raðhús í Aquamarina - no A2305
Raðhús í Aquamarina - no A2305Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Aquamarina - Vetrarleiga - Orlofsleiga
Fallegt raðhús í Aquamarina til vetrar- eða orlofsleigu. Húsið sem er á 3 hæðum samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Á neðstu hæðinni er fullbúið eldhús, þvottaaðstaða og baðherbergi. Á miðhæðinni eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi og á efstu hæðinni er þriðja svefnherbergið. Loftkæling er í húsinu.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð. Allt um kring er allskyns afþreying í boði og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Öflugt Íslendingafélag er á svæðinu sem stendur fyrir ýmsum hittingum og viðburðum. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og Campoamor Golf.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur mynd af því á hvaða svæði húsið er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: