Raðhús í Aquamarina - no A-2414
Raðhús í Aquamarina - no A-2414Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 8 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Orlofsleiga - Aquamarina
Huggulegt raðhús til orlofsleigu í Aquamarina. Húsið sem er á 2 hæðum, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á svalir úr öðru svefnherberginu, en af efri hæðinni er einnig stigi sem leiðir þig upp á sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Einnig er útgengt á litla verönd. Loftkæling er í húsinu. Húsið er staðsett í lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, apótek, veitingastaði og bari. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Campoamor Golf, Villamartin Golf, Las Colinas og Las Ramblas.
ATH - Staðsetningin á kortinu er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði húsið er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu