Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Los Balcones, Torrevieja
Virkilega falleg penthouse íbúð til sölu í Los Balcones, Torrevieja. Íbúðin sem er 84m2, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Íbúðin er björt og huggulega innréttuð. Útgengt er á rúmgóðar svalir og þaðan upp á stórt og gott sólþak þar sem nóg pláss er til að baða sig í sólinni eða jafnvel njóta góðrar máltíðar. Íbúðin er staðsett í snyrtilegum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug. Geymsla fylgir íbúðinni, sem og stæði í bílageymslu.
Staðsetningin er mjög góð, en hverfið er rólegt og gott en þó stutt í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Torrevieja sjúkrahúsið er steinsnar frá kjarnanum. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin Golf og Campoamor Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu