Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Parhús - Til sölu - Villamartin
Gott parhús til sölu í Vista Azul, Villamartin. Húsið sem er á 2 hæðum, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er úr stofu á góða verönd og lokaðan garð, en einnig er útgengt á svalir af efri hæð og rúmgott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Húsið er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum, bæði inni- og útilaug og leiksvæði fyrir börnin. Húsgögn geta fylgt húsinu.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Kjarninn er staðsettur í svokölluðu "kryddhverfi" sem er vinsælt á meðal Íslendinga. Ýmis konar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Ramblas og Las Colinas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu