Íbúð í Alicante - no Vivía homes
Íbúð í Alicante - no Vivía homesUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Langtímaleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúðir - Langtímaleiga - Alicante
Hér höfum við virkilega spennandi kost fyrir þá sem eru að huga að flutning til Spánar og vilja vera öruggir með langtímaleigu. Xaloc er nýbygging með 144 íbúðum ætluðum til langtímaleigu. Íbúðirnar eru bæði með 2 og 3 svefnherbergjum. Eldhúsið er fullbúið góðum tækjum og er LED lýsing í öllum íbúðum. Í kjarnanum hafa íbúar aðgang að líkamsrækt, sundlaug, leiksvæði fyrir börnin og paddle- og tennisvelli. Íbúðunum fylgir bæði geymsla og stæði í bílageymslu. ATH - Íbúðirnar leigjast allar án húsgagna.
Staðsetningin er góð en kjarninn er staðsettur á rólegum stað í Alicante borg, en þó er stutt í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu