Raðhús í Zeniamar - no 8
Raðhús í Zeniamar - no 8Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Raðhús
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Vetrarleiga - Orlofsleiga - Zeniamar
Huggulegt raðhús til orlofs- eða vetrarleigu í Zeniamar. Húsið sem er á 2 hæðum, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er bæði á svalir á efri hæðinni og rúmgóða verönd af neðri hæðinni en veröndin snýr í austur. Veröndin er rúmgóð og tilvalin í að njóta sólarinnar en útihúsgögn eru bæði á verönd og á svölum. Loftkæling er í húsinu sem er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug, líkamsrækt og sauna.
Staðsetningin er frábær, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en þetta er allt í göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Næsta strönd er í 5-10 mín akstursfjarlægð. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu