Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Villamartin
Virkilega björt og falleg íbúð til sölu í Villamartin. Íbúðin sem er 94m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar 20m2 svalir sem snúa út í sameiginlegan garð kjarnans. Í garðinum er sundlaug og góð aðstaða til að baða sig í sólinni. Íbúðinni fylgir bílastæði og geymsla.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði á svæðinu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í 5 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu