Íbúð í Torrevieja - no Manzana 700
Íbúð í Torrevieja - no Manzana 700Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Parhús
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 1
- Half baths: 1
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Torrevieja
Hér höfum við parhús til orlofs- eða vetrarleigu í Torrevieja. Húsið sem er á 2 hæðum samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, 1 gestasnyrtingu, eldhúsi og stofu/borðstofu. Út frá stofunni er sólstofa en úr henni er útgengt á góða verönd með sólhúsgögnum þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Af efri hæð er útgengt á rúmgott sólþak. Loftkæling er í húsinu. Húsið er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Góður skóli er í 4 mínútna göngufæri svo húsnæðið hentar vel fyrir þá sem eru með skólabörn. Næsta strönd er La Mata en ca 10 mínútna akstur er þangað. Ýmiskonar afþreying er í boði á svæðinu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Las Ramblas, Las Colinas, Villamartin og Campoamor golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu