Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Torrevieja
Hugguleg íbúð til sölu í Torreveija. Íbúðin sem er 67m2, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Íbúðin er á jarðhæð og er útgengt úr stofunni út á góða sólríka verönd þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðum og öruggum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og er bílastæði innan kjarnans. Loftkæling er í íbúðinni.
Staðsetningin er frábær, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en allt er þetta í göngufæri. Góðar rútusamgöngur eru einnig á svæðinu og er það einnig í göngufæri. Góðar strendur eru í stuttri akstursfjarlægð sem og líflegur miðbær Torrevieja en svæðið er rólegt þó stutt sé í meira líf fyrir þá sem leita að því. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: