Íbúð í Torrevieja - no CPRL Torrevieja center
Íbúð í Torrevieja - no CPRL Torrevieja centerUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 5 dagar
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 1
- Baðherbergi: 1
Lýsing
-
Lýsing: Sjá fulla lýsingu
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Torrevieja
Lítil og kósý íbúð í miðbæ Torrevieja, til orlofs- eða vetrarleigu. Íbúðin samanstendur af 1 rúmgóðu svefnherbergi, 1 baðherbergi, opnu eldhúsi og bjartri stofu/borðstofu. Útgengt er á 14m2 sólríkar suður svalir þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Loftkæling er í íbúðinni. Möguleiki er að fá stæði í bílageymslu með íbúðinni en biðja þarf um það sérstaklega.
Íbúðin er staðsett í hjarta Torrevieja en staðsetningin er sérstaklega góð þar sem gatan er róleg þrátt fyrir að stutt sé í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Playa del Cura og Playa Los Locos strendurnar eru í aðeins 7-10 mínúnta göngufæri, en ýmiskonar önnur afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðar samgöngur eru til og frá svæðinu en það er rútustöð í aðeins 400m fjarlægð frá húsinu og þar er m.a hægt að taka rútu á flugvöllinn, til Murcia og til Elche.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!