Íbúð í Torrevieja - no AL121
Íbúð í Torrevieja - no AL121- 2 svefnherbergi
- 2 baðherbergi
Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Torrevieja
Íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Torrevieja. Íbúðin sem er á jarðhæð samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á virkilega fallega 60m2 verönd þar sem snýr út í sameiginlegan garð. Veröndin er mjög rúmgóð og tilvalin til að njóta sólarinnar eða borða úti. Í íbúðinni er loftkæling með hitastillingu, uppþvottavél, þvottavél og fullbúið eldhús. Í kjallara er bílastæði sem fylgir íbúðinni en íbúðin er í góðum kjarna sem samanstendur af 6 byggingum með sameiginlegum garði. Þar eru 2 sundlaugar, nuddpottur, sauna og líkamsrækt.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Aðeins 5 mínútna akstur er í miðbæ og höfn Torrevieja en La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í aðeins 3 km fjarlægð. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um ring og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Til að mynda eru góðir 18 holu golfvellir í næsta nágrenni en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og Campoamor Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu