Íbúð í Torrevieja - Laguna Rosa
Íbúð í Torrevieja - Laguna Rosa- 3 svefnherbergi
- 2 baðherbergi
Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Torrevieja - Skammtímaleiga - Vetrarleiga - Orlofsleiga
Virkilega glæsileg íbúð til leigu í Torrevieja. Íbúðin samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stounni er útgengt á svalir með góðu útsýni yfir sameiginlegan sundlaugagarð. Frá svölunum er einnig stigi upp á sólþak þar sem er geggjað útsýni meðal annars að saltvötnunum. Þarna er nóg pláss til að njóta sólarinnar og jafnvel borða úti en þar eru sólhúsgögn og góð grillaðstaða. Húsið er staðsett í glæsilegum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að lokuðum garði með sameiginlegum sundlaugum og nuddpotti. Einkabílastæði fylgir íbúðinni innan kjarnans. Lofkæling er í íbúðinni.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Næsta strönd er aðeins 3 km fjarlægð.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu