Íbúð í Santiago de la Ribera - no BLP10
Íbúð í Santiago de la Ribera - no BLP10Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Santiago de la Ribera - Orlofsleiga - Vetrarleiga
Falleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Santiago de la Ribera. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á fínar svalir en einnig fylgir íbúðinni rúmgott sólþak. Íbúðin er í lyftuhúsi í lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug. Loftkæling er í íbúðinni.
Staðsetningin er mjög góð en Santiago de la Ribera er lítill bær staðsettur ca hálftíma suður af Torrevieja. Bærinn er gamalt fiskiþorp en hefur með tíð og tíma breyst í vinsælan áfangastað fyrir sólarþyrsta ferðamenn. Bærinn er nútímalegur en hefur þó haldið gamla sjarmanum í gegnum árin. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er allt um kring og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu