Íbúð í San Miguel de Salinas - no Saoco Gaella
Íbúð í San Miguel de Salinas - no Saoco GaellaUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð, Þakíbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - San Miguel de Salinas
Virkilega hugguleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í San Miguel de Salinas. Íbúðin sem er á efri hæð í tvíbýli, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á svalir og þaðan upp á rúmgott sólþak, þar sem tilvalið er að baða sig í sólinni. Íbúðin er fullbúin húsgögnum og borðbúnaði en hún er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að garði með sameiginlegum sundlaugum og leiksvæði fyrir börnin.
Staðsetningin er góð, en kjarninn er staðsettur í útjaðri San Miguel de Salinas. Bærinn er lítill með tæplega 7000 íbúa og er staðsettur í ca 10-15 mínútna akstursfjarlægð suð-vestur af Torrevieja. Svæðið er rólegt og gott, en þó stutt í alla þjónustu. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu