Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - San Miguel de Salinas
Falleg, ný íbúð til sölu í San Miguel de Salinas. Íbúðin sem er á jarðhæð, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á góða verönd þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðu lyftuhúsi með lokuðum garði, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Bílastæði eru við kjarnann.
Staðsetningin er góð en kjarninn er staðsettur í útjaðri San Miguel de Salinas sem er lítið þorp staðsett í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Torrevieja. Öll þjónusta er til staðar í bænum eins og veitingastaðir, verslanir, barir og apótek. Á miðvikudögum er alltaf útimarkaður sem er mjög vinsæll. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu