Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Quesada
Falleg íbúð til sölu í Quesada. Íbúðin sem er á jarðhæð, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á verönd en húsið er staðsett í litlum lokuðum kjarna, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Íbúðin afhendist fullbúin húsgögnum.
Staðsetningin er virkilega góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Quesada hefur allt til alls og þar er virkilega gott að vera en bærinn er staðsettur suður af Rojales. Það tekur 15-20 mínútur að keyra frá Quesada inn í Torrevieja. Strendurnar Guradamar, El Moncayo og La Mata eru í ca 5 km fjarlægð. Allt um kring er hægt að finna allskyns afþreyingu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna La Finca, La Marquesa, Las Colinas, Villamartin og Campoamor Golf.
Vinsamlegat hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu