Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Punta Prima
Hugguleg íbúð til sölu í Punta Prima. Íbúðin sem er í lyftuhúsi, er 92m2 og samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar 19m2 svalir. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug. Bílastæði fylgir íbúðinni.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Kjarninn er staðsettur rétt við sjóinn í Punta Prima en aðeins 250 metrar eru í næstu strönd. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Ramblas og Las Colinas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: