Íbúð í Punta Prima - no ALBA
Íbúð í Punta Prima - no ALBAUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 9 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
- Stærð: 70 m²
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Punta Prima
Virkilega hugguleg íbúð til orlofsleigu í Punta Prima. Íbúðin sem er 70m2, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á rúmgóða verönd þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að fallegum garði með sameiginlegri sundlaug. Loftkæling er í íbúðinni.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en allt er þetta í göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin Golf. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlæð, en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði.
Þessi íbúð er tilvalin fyrir þá sem leitast eftir góðu, rólegu umhverfi þar sem hægt er að slaka á og njóta en þó stutt í meira líf og fjör ef fólki hugnast það.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu