Íbúð í Punta Prima - no 4208

Íbúð í Punta Prima - no 4208
2 svefnherbergi
2 baðherbergi
122
765.000€

Upplýsingar

  • Bætt við: Fyrir 2 vikur
  • Flokkur:
  • Tegund:
  • Svefnherbergi: 2
  • Baðherbergi: 2
  • Stærð: 122

Lýsing

  • Lýsing:

    Íbúð - Til sölu - Punta Prima

    Einstök íbúð til sölu, við hafið í Punta Prima. Íbúðin sem er 122m2, samanstendur af 2 rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á tvennar rúmgóðar svalir sem snúa í norður og suður svo það er nóg pláss til að baða sig í sólinni. Báðar svalirnar eru með svalalokun úr gleri svo hægt er að nýta þær allan ársins hring og eru í raun aukarými við íbúðina. Íbúðin er hin glæsilegasta og vel er hugað að öllum smáatriðum. Loftkæling er í íbúðinni og húsgögn fylgja með. Eignin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum (ein af þeim infinity pool) og leiksvæði fyrir börnin. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.

    Staðsetningin er frábær en kjarninn er staðsettur alveg við sjóinn í Punta Prima. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin Golf og Campoamor Golf. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og standa Íslendingafélagið og Félag húseigenda á Spáni reglulega fyrir ýmsum hittingum og viðburðum.

    Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!

     

    Sjá fulla lýsingu

Staður

Share this property

Copy

Eða deila með:

Powered by Estatik

Reset password

Enter your email address and we will send you a link to change your password.

Get started with your account

to save your favourite homes and more

Get started with your account

to save your favourite homes and more

By clicking the «SIGN UP» button you agree to the Terms of Use and Privacy Policy
Powered by Estatik