Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Punta Prima
Hlýleg og falleg íbúð til sölu á góðum stað í Punta Prima. Íbúðin sem er á 1.hæð í lyftuhúsi, er 94m2 og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á 17m2 svalir sem snúa í norður. Íbúðinni fylgir geymsla og stæði í bílageymslu. Í kjarnanum er lokaður garður þar sem íbúar hafa aðgang að 3 sameiginlegum sundlaugum og sólbaðsaðstöðu.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Kjarninn er staðsettur aðeins 300m frá næstu strönd en nokkrar góðar strendur eru í göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði í nágrenninu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Sutt er í góða golfvelli eins og Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: