Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Punta Prima
Hugguleg íbúð til sölu í Punta Prima. Íbúðin sem er 87m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir sem snúa út í sameiginlegan garð. Íbúðin er staðsett í góðum kjarna rétt við sjóinn í Punta Prima. Íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugagarði þar sem eru 3 sundlaugar en íbúðinni fylgir einnig stæði í bílageymslu og geymsla.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Næsta strönd er í aðeins 800m fjarlægð. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni er þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og Campoamor Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu