Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Punta Prima
Íbúð til sölu á góðum stað við sjóinn í Punta Prima. Íbúðin sem er 76m2 samanstendur af 2 rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir með útsýni út í sameiginlegan sundlaugagarð. Eignin er í virkilega huggulegum lokuðu kjarna sem er með sólarhrings öryggisvöktun. Innan kjarnans eru fallegir garðar og nokkrar sameiginlegar sundlaugar. Einnig er bílageymsla í kjarnanum og geymsla sem fylgir íbúðinni.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingataði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði í næsta nágrenni og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Góðar strendur eru í göngufæri en þar má nefna Cala Piteras, Punta Prima og Playa Flamenca. Fyrir þá sem eru í golfinu eru góðir 18 holu golfvellir í næsta nágrenni en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu