Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Punta Prima - Til sölu
Falleg ný íbúð í Punta Prima til sölu. Íbúðin sem er 86m2 samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni úr útgengt á verönd. Íbúðin er staðsett í virkilega fallegum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug, nuddpotti, leiksvæði fyrir börnin og líkamsrækt. Bílastæði fylgir í bílageymslu.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Allskyns afþreying er í boði á svæðinu og er til að mynda mjög virkt Íslendingafélag á svæðinu og er alltaf nóg fyrir stafni hjá þeim. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas. Næsta strönd er í aðeins 700m fjarlægð.
Fyrir frekari upplýsingar um eiginina - verið i sambandi í gegnum [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl.
Sjá fulla lýsingu