Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Falleg íbúð í Punta Prima með glæsilegu útsýni yfir sjóinn. Íbúðin sem er 101m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stóru opnu eldhúsi og stofu/borðstofu þaðan sem útgengt er á 21m2 svalir. Íbúðinni fylgir einnig geymsla og stæði í bílageymslu. Íbúðin er í góðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að fallegum garði með sameiginlegum sundlaugum og leiksvæði fyrir börnin.
Punta Prima er staðsett aðeins 5km frá Torrevieja en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. La Zenia Boulevard og Habaneras verslunarkjarnarnir vinsælu eru skammt undan. Cala Piteras ströndin, Punta Prima ströndin og Playa Flamenca ströndin eru í göngufæri. Fyrir þá sem eru í golfinu þá ættu þeir að finna eitthvað við sitt hæfi en aðeins 7 km eru í góða golfvelli eins og Villamartin golf, Campoamor golf, Las Ramblas og Las Colinas en allir eru þeir 18 holu vellir.
Eign sem vert er að skoða!
Sjá fulla lýsingu