Íbúð í Playa Flamenca - no LAC694
Íbúð í Playa Flamenca - no LAC694Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 mánuður
- Flokkur: Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing: Sjá fulla lýsingu
Íbúð - Vetrarleiga - Playa Flamenca
Björt og falleg íbúð til vetrarleigu í eftirsótta kjarnanum Flamenca Village. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, fullbúnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar en einnig er stigi upp á sólþak þar sem nóg pláss er til að baða sig í sólinni. Íbúðin er huggulega innréttuð og vel hugað að smáatriðum. Íbúðin er staðsett í Flamenca Village sem er virkilega góður kjarni þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum (2 af þeim upphitaðar), sundlaugabar, sauna og líkamsrækt.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari og er Mercadona rétt við hliðina á kjarnanum. Svæðið er vinsælt meðal Íslendinga en Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í göngufæri og þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Laugardagsmarkaðurinn vinsæli er einnig í stuttu göngufæri og er ekki langt í næstu strönd.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!