Íbúð í Playa Flamenca - no LAC675
Íbúð í Playa Flamenca - no LAC675Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Playa Flamenca
Íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Playa Flamenca. Íbúðin sem er á 1.hæð í lyftuhúsi, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á ágætis svalir sem snúa í austur. Íbúðin er staðsett í lokuðum kjarna þar sem er sameiginleg sundlaug en einnig er bílastæði innan kjarnans.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en allt er þetta í göngufæri. Ýmiskonar afþreying er allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: