Íbúð í Playa Flamenca - no LAC596
Íbúð í Playa Flamenca - no LAC596Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 mánuður
- Flokkur: Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing: Sjá fulla lýsingu
Íbúð - Vetrarleiga - Playa Flamenca
Góð íbúð til vetrarleigu í Playa Flamenca. Íbúðin er björt og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, fullbúnu eldhúsi og góðri stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir sem snúa út í sameiginlegan sundlaugagarð, en einnig er stigi upp á gott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett á 2.hæð í lyftuhúsi í lokuðum kjarna, þar sem íbúar hafa aðganga að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Þó að allt sé í göngufæri, þá er svolítið labb í næstu matvöruverslun. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Sundlaugabarinn þar sem Félag húseigenda á Spáni stendur fyrir hittingum alla föstudaga, er í göngufæri og einnig laugardagsmarkaðurinn vinsæli.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!