Íbúð í Playa Flamenca - no LAC546
Íbúð í Playa Flamenca - no LAC546Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Playa Flamenca
Falleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Playa Flamenca. Íbúðin er á efstu hæð í lyftuhúsi og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á rúmgóðar svalir. Loftkæling er í íbúðinni. Húsið er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að 2 sameiginlegum sundlaugum.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en allt er þetta í göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði á svæðinu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Öflugt Íslendingafélag er á svæðinu sem rekur félagsheimili og eru reglulega viðburðir og ferðir á þeirra vegum.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: