Íbúð í Playa Flamenca - no LAC519
Íbúð í Playa Flamenca - no LAC519Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Vetrarleiga - Orlofsleiga - Playa Flamenca
Góð íbúð til vetrarleigu eða orlofsleigu í Playa Flamenca. Íbúðin sem er á efstu hæð í lyftuhúsi samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir en einnig fylgir íbúðinni einka sólþak þar sem tilvalið er að flatmaga og njóta sólarinnar! Íbúðin er staðsett í mjög góðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að góðum garði með sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er frábær en örstutt er í verslanir, veitingastaði og bari. Svæðið er virkilega vinsælt meðal íslendinga og er öflugt íslendingafélag á svæðinu og ýmsir viðburðir og hittingar á vegum þess sem við getum veitt nánari upplýsingar um sé þess óskað. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði á svæðinu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekar upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu