Íbúð í Playa Flamenca - no LAC205
Íbúð í Playa Flamenca - no LAC205- 2 svefnherbergi
- 2 baðherbergi
700€
Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 3 ár
- Flokkur: Skammtímaleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð til skammtíma/vetrarleigu í Playa Flamenca. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á svalir sem snúa út í fallegan sameiginlegan sundlaugagarð. Loftkæling er í íbúðinni og lyfta í húsinu.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Beint fyrir utan garðinn er LIDL verslun. Playa Flamenca Commercial center er í 5 mínútna göngufjarlægð og aðeins 10 mínútur tekur að ganga á laugardagsmarkaðinn. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Villamartin golf, Campoamor golf og Las Ramblas.
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar:
Powered by Estatik