Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Playa Flamenca
Falleg íbúð til sölu í Playa Flamenca. Íbúðin sem er 73m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á 16m2 svalir. Íbúðin er staðsett í lyftuhúsi í góðum lokuðum kjarna, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og bílastæði innan kjarnans.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Aðeins 500m eru í næstu strönd. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin golf, Campoamor golf, Las Colinas og Las Ramblas. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og reglulega eru hittingar og viðburðir á vegum Íslendingafélagsins eða Félags húseigenda á Spáni.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: