Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Playa Flamenca
Falleg íbúð til sölu í Playa Flamenca. Íbúðin sem er á jarðhæð er 80m2 og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt stóra 116m2 verönd þar sem nóg pláss er til að borða úti eða bara liggja og baða sig í sólinni! Íbúðin er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að góðum garði með sameiginlegri sundlaug og bílastæðum.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er örstutt frá en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði á svæðinu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðar strendur eru skammt undan en þar má nefna Mar Azul, La Veleta og Cala Ferris og aðeins lengra í burtu Punta Prima, Playa Flamenca og Cabo Roig. Einnig eru góðir golfvellir í nágrenninu eins og Las Ramblas, Las Colinas, og Villamartin golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu