Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Playa Flamenca
Nýjar og glæsilegar íbúðir til sölu í Playa Flamenca. Við erum með úrval íbúða í þessum fallega kjarna, allt frá stúdíóíbúðum og upp í íbúðir með 3 svefnherbergjum. Um er að ræða bæði íbúðir á jarðhæð, með garði eða íbúðir á efri hæðum með svölum/sólþaki. Öllum íbúðum fylgir bílastæði og geymsla. Íbúðirnar eru í fallegum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum, nuddpotti og fallegum garði þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari og er kjarninn í aðeins 500m fjarlægð frá ströndinni. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin Golf og Campoamor Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsinar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu