Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Pilar de la Horadada
Hugguleg íbúð til sölu í Pilar de la Horadada. Íbúðin sem er 80m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu. Inn af eldhúsinu er þvottahús. Úr stofunni er útgengt á rúmgóða verönd þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Pilar de la Horadada er lítill bær sem er staðsettur rétt suður af Torrevieja en þrátt fyrir rólegheit er stutt í meira líf fyrir þá sem leita að því. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
ATH - Staðsetningin er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði íbúðin er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu