Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Orihuela Costa
Virkilega hugguleg íbúð til sölu í Orihuela Costa, nánar tiltekið í Valentino Golf. Íbúðin sem er á 2 hæðum, er 115m2 og samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á stórar og góðar svalir en einnig fylgir íbúðinni rúmgott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er í lyftuhúsi og er loftkæling til staðar. Bílastæði eru við húsið.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en eignin er staðsett á milli Los Dolses og Villacosta. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og eru reglulega hittingar og viðburðir á þeirra vegum, bæði á vegum Íslendingafélagsins og einnig Félags húseigenda á Spáni sem heldur vel utan um fólk á svæðinu. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas. Næsta strönd er í ca 5km fjarlægð.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu