Íbúð í Mil Palmeras - no AL106
Íbúð í Mil Palmeras - no AL106Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
- Stærð: 84 m²
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Mil Palmeras
Virkilega falleg og rúmgóð íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Mil Palmeras. Íbúðin sem er 84m2 samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á stórar og góðar svalir frá bæði stofu, eldhúsi. Gott útsýni er af svölunum en þar eru góð útihúsgöng og tilvalið að njóta sólarinnar. Einnig er útgengt frá svefnherbergi og baðherbergi á minni svalir. Loftkæling er í íbúðinni og hiti er í gólfum á baðherbergjum. Íbúðin er fullbúin fyrir 6 manneskjur. Húsið er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug, líkamsrækt og leiksvæði fyrir börnin. -
Staðsetningin er mjög góð en kjarninn er staðsettur í aðeins 200m fjarlægð frá ströndinni í Torre de la Horadada. Stutt er í verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði á svæðinu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Á sumrin er vikulegur markaður rétt fyrir aftan kjarnann.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu