Íbúð í Mil Palmeras - no A-2409
Íbúð í Mil Palmeras - no A-2409- 3 svefnherbergi
- 2 baðherbergi
Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 9 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Mil Palmeras
Íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Mil Palmeras. Íbúðin samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu. Inn af eldhúsinu er þvottaaðstaða. Úr stofunni er útgengt í stóran garð með gervigrasi og sólhlíf. Í einu svefnherberginu er hjónarúm en í hinum eru tvö einstaklingsrúm. Íbúðin er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Mil Palmeras er rólegt og gott svæði en þó vinsælt meðal ferðamanna. Það tekur ca 7 mínútur að keyra inn í La Zenia þar sem er meira líf eða um 15 mínútur inn í miðbæ Torrevieja. Ýmis afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Næsta strönd er í aðeins 450m fjarlægð.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði íbúðin er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu