Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Mil Palmeras
Hugguleg íbúð til sölu við ströndina í Mil Palmears. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir sem snúa út að ströndinni. Íbúðin er í lyftuhúsi í virkilega góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og barnalaug. Íbúðinni fylgir geymsla og stæði í bílageymslu.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Mil Palmeras er rólegt og gott svæði en þó vinsælt meðal ferðamanna. Það tekur ca 7 mínútur að keyra inn í La Zenia þar sem er meira líf eða um 15 mínútur inn í miðbæ Torrevieja. Ýmis afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu