Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Los Dolses
Virkilega falleg íbúð til sölu í Los Dolses, Orihuela Costa. Íbúðin sem er á jarðhæð, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er í afgirtan garð með verönd bæði úr stofu og svefnherbergi. Garðurinn snýr í suður, út í sameiginlegan sundlaugagarð. Geymsla fylgir íbúðinni, sem og stæði í bílageymslu. Loftkæling er í íbúðinni.
Staðsetningin er mjög góð, hverfið er rólegt og gott þó að stutt sé í alla þjónustu. Næsta matvöruverslun er í ca 15 mínútna göngufæri en það tekur ca 20 mínútur að labba í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina vinsælu þar sem finna má yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og standa bæði Íslendingafélagið og Félag húseigenda á Spáni fyrir ýmsum hittingum og viðburðum. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og Campoamor Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu