Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Los Balcones
Fallegar íbúðir í nýjum kjarna í Los Balcones til sölu. Erum bæði með íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum en þessi tiltekna íbúð er 70m2 og samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er úr stofunni á góðar svalir sem snúa út í sameiginlegan sundlaugagarð. Íbúðin er staðsett í fallegum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að fallegum garði með 2 stórum sundlaugum. Möguleigi er á að fá geymslu og stæði í bílageymslu.
Staðsetningin er mjög góð, en Los Balcones er rólegt og fjölskylduvænt hverfi í Torrevieja. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin Golf og Campoamor Golf. Góðar gönguleiðir eru allt um kring og eru saltvötnin fallegu skammt undan.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu