Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Los Balcones
Hugguleg íbúð til sölu í Los Balcones. Íbúðin sem er 84m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Inn af öðru svefnherberginu er baðherbergi og fataherbergi. Úr stofunni er útgengt á rúmgóðar svalir en þaðan er stigi upp á 63m2 sólþak þar sem nóg pláss er til að njóta sólarinnar. Íbúðinni fylgir geymsla og stæði í bílageymslu. Íbúðin er staðsett í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Miðbær Torrevieja er í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Ramblas og Las Colinas.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði íbúðin er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu