Íbúð í Los Altos - no M Roger
Íbúð í Los Altos - no M RogerUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 6 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing: Sjá fulla lýsingu
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Los Altos
Falleg íbúð á jarðhæð í Los Altos. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu. Útgengt er á góða verönd, bæði úr stofu og svefnherbergi, þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Veröndin snýr út í sameiginlegan sundlaugagarð en þar eru sundlaug og barnalaug. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.
Staðsetningin er góð en í nágrenninu eru veitingastaðir/barir og í ca 10-15 mínútna göngufæri er matvöruverslun og apótek. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í ca 5 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Sundlaugabarinn vinsæli þar sem Íslendingar hittast alla föstudaga er í ca 15 mínútna göngufjarlægð. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!