Íbúð í Los Altos - no Los Altos Theo
Íbúð í Los Altos - no Los Altos TheoUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 vikur
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 4
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Los Altos
Hugguleg íbúð til orlofsleigu í Los Altos. Íbúðin sem er á 2 hæðum, samanstendur af 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á verönd og á rúmgóðar svalir þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og er útsýnin úr íbúðinni yfir sundlaugasvæðið. Möguleiki er að leigja bíl með íbúðinni, annað hvort 5 eða 7 manna bíl.
Staðsetningin er mjög góð, en kjarninn er staðsettur á rólegu svæði en þó ert stutt í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Næsta strönd er í ca 20 mínútna göngufæri en margar góðar strendur eru á svæðinu, sem hafa hlotið viðurkenningu fyrir hreinleika. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: